Sveinsprófsnefnd í rennismíði 2020-2024
Sveinsprófsnefnd í rennismíði er skipuð samkvæmt 30. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 og reglugerð nr. 698/2009 um sveinspróf. Hlutverk nefndarinnar er að sjá um framkvæmd sveinsprófs í iðninni fyrir landið allt, þar með talið mat á úrlausnum, svo og þau verkefni sem ráðuneytið kann að fela nefndinni sérstaklega og varða sveinspróf.
Nefndin er svo skipuð:
- Steindór Hrannar Grímarsson, án tilnefningar
- Gunnsteinn Smárason, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs málmtækni-, vélstjórnar- og framleiðslugreina
- Helgi Stefánsson, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs málmtækni-, vélstjórnar- og framleiðslugreina
Skipunartími er frá 24. maí 2020 til 23. maí 2024.