Verkefni
Efla þarf enn frekar samstarf ríkis og sveitarfélaga á sviðum loftslags- og umhverfismála þar sem þau gegna lykilhlutverki, s.s. í innleiðingu hringrásarhagkerfisins, á sviði fráveitumála, mengunarvarna, vatnsverndar, náttúruverndar og verndunar líffræðilegs fjölbreytileika. Samþætta þarf betur skipulagsáætlanir sveitarfélaga og svæðisskipulagsstefnu til að ná betri nýtingu á innviðum og þjónustu, styðja við loftslagsmarkmið, fá betri sýn yfir framboð á lóðum og húsnæði og styðja við stjórnsýslu skipulagsmála.
Ráðuneyti
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðKafli
Sveitarfélög
Framvinda
Ráðuneytið hefur gert viðaukasamning við öll landshlutasamtök sveitarfélaga varðandi verkefni á sviði umhverfis-, orku- og loftslagsmála. Jafnframt hefur ráðuneytið verið með samninga við Samband íslenska sveitarfélaga og gert er ráð fyrir nýjum samstarfssamningi á árinu 2024.Staða verkefnis
HafiðViðvarandi verkefni